Að þessu sinni var ákveðið að halda hátíðina á laugardegi og bauð Foreldrafélag Akurs uppá frábæra skemmtidagsskrá og veitingar og var veðrið með ágætasta móti. Leikhópurinn Lotta, andlitsmálning, Bangsí Jökull og Lala skemmtu börnum sem og fullorðnum á þessum dásamlega degi.