Innskráning í Karellen

Kennarar lögðu leið sína til Brighton í Bretlandi vor 2016 og fóru á Numicon námskeið. Numicon er frábær og skemmtilegur efniviður.

Hér má lesa um

Það veitir börnum á leikskólaaldri góðan undirbúning í að skilja stærðfræði og eykur stærðfræðiþekkingu þeirra. Auk plastkubba o.fl. þá fylgir settinu myndskreytt kennarabók sem útskýrir stærðfræðihugmyndir er mæta barninu á þessu mikilvæga stigi þess í að skilja stærðfræði. Í kennarabókinni er einnig að finna fjölda frjórra hugmynda um skemmtileg stærðfræðiverkefni fyrir inni- og útileiki í sandi og vatni, bygginga- og hlutverkaleiki, sem og hugmyndir að leikjum í matarhléum, á gólfteppinu, í "að ata út" leik og borðleik. Lykilinn og grunnþátturinn er áherslan á umræður um stærðfræði með hugmyndum til að efla stærðfræðiþekkingu innan leikskólans. Nánari upplýsingar og stuðningur við þetta sett má finna á:www.numicon.com.

© 2016 - Karellen