Vináttulotan er beint framhald af bæði samskipta- og jákvæðnilotunni og í reynd hástig þeirrar félagslegu jákvæðni sem þjálfuð hefur verið. Þar styrkjum við og eflum vináttu á allar lundir og vinaleikir s.s. leynivinaleikir barna- og fullorðinna eru skemmtilegt tækifæri. Einnig er mikilvægt að vinna með skilgreiningar á vináttunni, álit barnanna á vináttunni og hvað það þýðir að vera vinur eða vinkona. Raunveruleikatengd verkefni væru til dæmis að vinna verk fyrir aðra í húsinu s.s. fyrir stoðþjónustuna og hjálpa öðrum á kjarnanum við t.d. frágang. Kennarar og nemendur vinna saman að því að skapa nálægð og kærleika á kjarnanum sínum, æfa snertingu s.s. faðmlög og þegar raðir fara milli staða er kjörið að hafa vinaraðir þar sem tvö og þrjú leiðast í stað einfaldrar raðar.