Innskráning í Karellen
news

Sparifatadagur 6.janúar og Jákvæðnilota hefst 9.janúar

04. 01. 2023

Gleðilegt ár kæru fjölskyldur og þakkir fyrir árið sem var að líða. Við á Akri erum spennt fyrir 2023 og starfið með dásamlegu börnunum er komið á fullt eftir gott jólafrí.

Föstudaginn 6.janúar munum við kveðja jólin hátíðlega og eru spariföt barnanna því velkomin þennan dag.

Mánudaginn 9. janúar hefst jákvæðnilotan okkar og verður heldur betur margt skemmtilegt brallað og þjálfað í henni.

Hér er aðeins nánar um Lotu 4: Jákvæðni

Jákvæðnilotan er annað stig einstaklingsþjálfunar og fer fram í janúar.

Lykilhugtök eru: ákveðni, hreinskiptni, bjartsýni, gleði.

Uppskeruvikan er gleðivika.

Jákvæðnilotan er upphaf nýrrar annar og er frábært að slá jákvæðan takt inn í skólastarf vorannarinnar. Vitaskuld er jákvæðni alltaf í fyrirrúmi alla daga skólaársins en þarna er tækifæri til að formgera jákvæðniæfingarnar. Vinna með jákvæð orð og jákvæðar setningar, leikrit um jákvæða og neikvæða hegðun og gleðisöngvar eru meðal þess sem vinna má með. Jafnframt er mikilvægt að fjalla um bjartsýni og hvernig bjartsýnin birtist í afrekum mannkynssögunnar. Gleðin er æfð með öllum tiltækum ráðum og munum að söngur og hreyfing ýtir best við þeim boðefnum heilans sem valda taugafræðilegri gleði. Samhliða þjálfuninni í að skilja hvað jákvæð afstaða til lífsins þýðir, ber að vinna verkefni sem þjálfa börnin í að setja mörk fyrir sjálf sig, landamæri sem þau geta af ákveðni og elskulegheitum tjáð sig um. Beinar æfingar og umræða um það sem hver og ein/n vill fyrir sjálfa/n sig og hvernig við látum aðra vita af mörkunum okkar er hreinskiptniæfing og leikrit um skýr og óskýr skilaboð eru kjörin. Munum hið gamla og góða Hjallaráð; ekki segja ekki.

© 2016 - Karellen