Innskráning í Karellen
news

Súrdeigsbrauðið okkar

23. 11. 2018

Við hættum ekki að vera stolt af eldhúsinu okkar þar sem Sirrý okkar sem hefur verið á Akri frá upphafi heldur áfram að heilla okkur upp úr skónum með matnum sínum. Hún vindur sér í nýjungar eins og enginn sé morgundagurinn og hefur ný bakað súrdeigsbrauð frá grunni tvisvar í viku. Súrinn eða mamman eins og við köllum þetta, tók tíma að vakna aftur eftir að hafa notið sumarsins í frosti en nú er mamman vöknuð og súrdeigsbrauðið okkar góða komið í fastar skorður eins og venjulega. Hina dagana er bakað allskonar brauð í leikskólanum. Maciej aðstoðarmatráður er einnig að njóta sín í starfi og spilar undurfagra tóna á gítar á milli stunda í eldhúsinu. Við erum svo sannarlega heppin með okkar fólk hér á Akri.

© 2016 - Karellen