Innskráning í Karellen
news

Sumarhátíðin 9.júní

14. 06. 2017

Hin árlega sumarhátíð Akurs var haldin hátíðleg s.l föstudag en hún var í boði foreldrafélagsins. Við skelltum í eina risa skrúðgöngu með trompet undirspili, blöðrum,andlitsmáluðum börnum og fána skólans og gengum saman öll sem eitt í kringum skólann okkar.

Sirkus Íslands mætti á svæðið og sýndi frábæra loftfimleika og önnur skemmtiatriði. Við fengum pylsur með öllu og svalandi drykki í blíðskaparveðrinu. Takk fyrir daginn kæru fjölskyldur!

© 2016 - Karellen