Innskráning í Karellen
news

Sjálfstæðislotan er hafin!

08. 10. 2021

  • Sjálfstæðislotan er fyrsta stig einstaklingþjálfunar og fer fram í október-nóvember.
  • Lykilhugtök eru: sjálfstyrking , sjálfstraust, öryggi, tjáning.
  • Uppskeruvikan er tjáningarvika.

Athygli og hvatning til allra er kjarni þessarar lotu. Kennarar leggja sig fram við að nálgast hvern og einn nemanda og sannfæra bæði nemandann og fjölskylduna um óendanlegan vilja skólans til að hafa þennan einstakling í fyrsta sæti! Verkefni tengd fjölskyldum eru frábær, fregnir að heiman mikilvægar og snjallt er að þau komi með hlut að heiman til að segja hinum frá. Framsagnaræfingar eru góðar og þjálfun í að tjá tilfinningar er mikilvægur þáttur; t.d. að ræða um hvernig nemendum líður þegar þeir koma í skólann, teikna myndir og ræða um það sem er best í skólanum eða hvenær þeim líður illa og hvað hægt sé að gera í því. Beinar æfingar í jákvæðri tjáningu um sjálfa/n sig eru frábærar.

© 2016 - Karellen