Innskráning í Karellen
news

Prjónavettlingar

24. 11. 2018

Okkur finnst svo dásamlegt að búa í samfélagi þar sem allir velunnarar leikskólans taka höndum saman til að búa til kærleiksríkt samfélag. Við erum svo lánsöm að eiga ömmu í leikskólanum sem hefur unun af því að prjóna á litla fingur og litlar tær. Við erum búin að fá smá lager af vettlingum inn í skólann sem hægt er að kaupa gegn vægu gjaldi á skrifstofu skólans. Það er svo gott að vera með lopavettlinga í kuldanum hérna á Íslandi og geta þær fjöslkyldur sem ekki eiga prjónara á sínum snærum notið góðs af.

© 2016 - Karellen