Innskráning í Karellen
news

Line og Jeanette

20. 06. 2018

Núna eru ný andlit hér og þar í húsi en við erum með tvo hressa nema frá UCC Kaupmannahafnar háskóla en það eru þær Line og Jeanette. Þær verða hjá okkur á Akri í 6 mánuði í vettvangsnámi og munu vera tvær vikur á hverjum kjarna. Þær eru búnar að fara á Hjallastefnunámskeið og eru nemar hjá Karólínu (Köllu) okkar á Gulakjarna.

Einnig eru þrír vinnuglaðir einstaklingar á vegum vinnuskólans sem sóttu sérstaklega um að fá að vera hjá okkur á Akri. Þetta eru þau Camilla, Kristín Ósk og Daníel. Við tökum þeim fagnandi enda dásamlegt að fá svona flotta einstaklinga til liðs við okkur.

© 2016 - Karellen