Innskráning í Karellen
news

Kennari framtíðarinnar

15. 01. 2019

Hún Ástrós okkar á Grænakjarna vildi ólm koma í atvinnuviðtal við Sigrúnu leikskólastjóra og biðja hana um að fá að vera kennari á Akri. Hún ætlar sér að verða leikskólakennari í framtíðinni og fannst tilvalið að láta á það reyna strax. Eftir gott samtal um uppáhalds mat sem er bleikja og hvernig bæði Sigrún og Ástrós eru að æfa sig að borða kartöflur, var tekin ákvörðun um að hún haldi áfram að vera svona kröftug og flott stúlka og komi til okkar þegar hún er orðin eldri.

Mynd er birt með góðfúslegu leyfi móður og veitt Ástrós einnig samþykki sitt.

© 2016 - Karellen