Innskráning í Karellen
news

Fjölskylduframlag á föstudegi

10. 11. 2017

Kevin, afi hans Mikaels Mána, kom í dag og spilaði og söng með á söngfundum Akurs fyrir hádegi. Við erum að kynna tungumál og fána á hverjum föstudegi og er enska (BNA) kynnt í dag. Því var tilvalið að fá svona flott fjölskylduframlag frá Kevin sem er bandarískur en er nýfluttur til Íslands til að vera með fjölskyldunni sinni. Mikael Máni er fæddur í Bandaríkjunum en móðurmálið hans er íslenska.

© 2016 - Karellen