Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í dag hér á Akri. Börnin hafa öll útbúið listaverk sem hanga á göngum leikskólans og í sal og einnig hafa börnin boðið fjölskyldum sínum að þræða þrautabrautir í salnum sem hún Sóley hefur útbúið. Salurinn hefur verið fullur af frábærum foreldrum sem skemmta sér með börnum sínum.