Innskráning í Karellen
news

Áfram Ísland

22. 06. 2018

Í dag er skemmtileg fótboltastemning vegna leiks Íslands-Nígeríu. Flestir hafa fengið málaða fána á kinnar og að sjálfsögðu eru allir í rauðu og bláu í dag, sem og aðra daga þar sem svo heppilega vill til að skólafötin eru að mestu í íslensku fánalitunum. Það verður svo í boði í vali í dag að fá að velja HM krók þar sem hægt er að fylgjast með leiknum.

Að sjálfsögðu höldum við okkar venjulega leikskólaramma utan um starfið í dag en kryddum þó upp á skemmtilegum viðbótum.

Góða helgi og áfram Ísland!

© 2016 - Karellen